Átkaið 2012: Stuðningsmiðstöð
fyrir veikustu börnin
Hér á landi eru um 50 börn með sjaldgæfa, mjög alvarlega, ólæknandi sjúkdóma. Þessi hópur hefur farið ört stækkandi á undanförnum árum, en framfarir í tækni og læknavísindum leiða af sér að þau geta lifað lengur. Áður dóu mörg þessara barna snemma lífsleiðinni en með bættri meðferð ná mörg að lifa góðu lífi.
Sú jákvæða þróun hefur orðið að langveik börn dvelja nú ekki mánuðum og árum saman á sjúkrahúsum eins og áður þekktist heldur búa heima hjá fjölskyldum sínum. Engu að síður þurfa þau umönnun allan sólarhringinn sem er mjög sérhæfð og flókin og er nú aðallega í höndum foreldra þeirra.
Segja má að í dag séu rekin á Íslandi 50 lítil hátæknisjúkrahús inn á heimilum þessara barna með ýmsum tækjum eins og til dæmis öndunarvélum, sog- og súrefnistækjum, hóstavélum, blóðskiljunarvélum, næringardælum og dælum til að gefa næringu í æð.