Ljósið

aav2010_banner1Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.

Húsnæði Ljóssins er eins og fallegt heimili þar sem hægt er að koma í kaffihúsastemningu, spjalla við náungann eða taka sér bók í hönd. Einnig er hægt að taka þátt í þeim tilboðum sem eru á dagskrá alla daga. Þátttakendur í Ljósinu koma að eigin frumkvæði og áhuga og raða saman dagskrá sem hentar hverju sinni. Í Ljósinu er mikið unnið með lífsgæðin og lífsgleðina og lítið er talað um sjúkdóma og veikindi.

Á allra vörum safnar í ár fyrir framtíðarhúsnæði til handa Ljósinu. Um leið og þú leggur þitt af mörkum í söfnunarþættinum á SkjáEinum, föstudaginn 27. ágúst, lyftir þú grettistaki fyrir Ljósið.

 

aav2010_banner2

aav2010_banner3

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni

Á allra vörum - kt: 510608-1350 - bankaupplýsingar: 101 26 55555