Í dag, 8. desember afhentu þær Elísabet Sveinsdóttir, Gróa Ásgeirsdóttir og Guðný Pálsdóttir f.h. Á allra vörum, Ernu Magnúsdóttir frá Ljósinu, féð.
Átakið má rekja til Gróu Ásgeirsdóttur, sem sjálf gekk í gegnum krabbameinsmeðferð fyrir nokkrum árum, en átakið fór nú fram í þriðja sinn. „Markmiðið var að leggja Ljósinu lið og vekja athygli á þeirra frábæra starfi. Að safna tæpum 40 millj. kr. er bara bónus og sýnir hvað þjóðin er rausnarleg þegar kemur að stuðningi við slík málefni, “ segir Gróa en auk hennar standa þær Guðnýju Pálsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir að Á allra vörum. „Það er ótrúlegt hverju maður getur komið í verk þegar maður einsetur sér það og gaman að búa í samfélagi þar sem einstaklingurinn getur skipt miklu máli,“ segir Gróa.
Um 40 milljónir króna söfnuðust í þjóðarátakinu Á allra vörum, sem fram fór í sumar. Átakið vakti athygli hvarvetna en í ár var því ætlað að safna fé til styrktar kaupa á nýju húsnæði Ljóssins, endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem fengið hefur krabbamein. Tugir þúsunda manna tóku þátt í átakinu með kaupum á varaglossi frá DIOR, auk þess að ráðist var í sérstakan söfnunarþátt á Skjá einum þar sem um 33.000.000 krónur söfnuðust.
Á allra vörum afhendir ljósinu söfnunarfé 2010 from Marianna Fridjonsdottir on Vimeo.