Á föstudagskvöldið 26. ágúst kl. 21:00 verður söfnunar- og skemmtiþáttur í opinni dagsrká á SkjáEinum. Þar geta landsmenn tekið þátt og safnað fyrir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Á meðan á söfnuninni stendur verður fjöldi skemmtiatriða auk þess sem landsþekktir svara í síma og taka á móti styrkjum. Allir sem koma að útsendingunni leggja átakinu lið í sjálfboðavinnu.