Góðgerðarfélagið „Á allra vörum“ stendur nú fyrir sinni fjórðu landssöfnun. Um er að ræða kynningar- og fjáröflunarátak þar sem þjóðin sameinast og lætur gott af sér leiða. Félagið velur árlega eitt viðráðanlegt verkefni og hefur m.a. safnað fyrir SKB, Ljósið og Krabbameinsfélag Íslands.
Í ár beinir „Á allra vörum“ kastljósinu að Neistanum og málefnum hjartveikra barna, en um 70 börn greinast með hjartagalla árlega. Í Alkemistanum þessa vikuna er rætt við Elísabetu Sveinsdóttur einn af stofnendum „Á allra vörum“ um átakið.
Sjá umfjöllunina í Alkemistanum á mbl.is