Í átakinu Á allra vörum fyrir rétt tæpum tveimur árum safnaði þjóðin ríflega 50 milljónum, sem runnu til byggingar hvíldarheimilis fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra.
Stóri dagurinn rann upp sunnudaginn 25. júní, 2011 þegar Hetjulundur var vígður við formlega athöfn. Viðstaddir voru félagsmenn í Samtökum Krabbameinssjúkra barna, Sr. Pálmi Matthíasson, sem blessaði Hetjulund og forsvarskonur átaksins Á allra vörum.
Við óskum Samtökum Krabbameinssjúkra Barna til hamingju með húsið fyrir hönd ykkar allra og erum þess fullviss að börnin og fjölskyldur þeirra eiga eftir að eiga þar góðar og gleðilegar stundir á erfiðum tímum.
Myndir frá afhendingunni má sjá hér: http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150222734209293.340500.42830569292
Myndband frá afhendingunni á mbl.is má sjá hér: http://mbl.is/frettir/innlent/2011/06/29/hetjulundur_vigdur/