Frétt

27.8.2011

40 milljónir söfnuðust í Á allra vörum 2011

Ríflega 40 milljónir króna  söfnuðust í átakinu „Á allra vörum“ 2011.  Söfnunarféð verður notað til að kaupa nýtt hjartaómskoðunartæki fyrir börn,  sem staðsett verður á Barnaspítala Hringsins. Tækið hefur verið nefnt „Hjörtur“, en sú tillaga kom fram með þessum orðum: „Megi Hjörtur bjarga mörgum litlum hjörtum“ - í beinni útsendingu á Skjá einum í gærkvöldi.  

Átakið hófst formlega 12. ágúst með sölu á hinum landsþekktu „Á allra vörum“ glossum frá Dior og lauk í gærkvöldi með söfnunarþætti á Skjá einum. Enn er hægt að leggja átakinu lið með því að hringja í símanúmerin 903 1000, 903 3000 og 903 5000.

-

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni

Á allra vörum - kt: 510608-1350 - bankaupplýsingar: 101 26 55555