Markmið Neistans er m.a. Að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartasjúkdómum barna og hjartagalla, meðferð þeirra, réttindi fjölskyldunnar og mannlega þáttinn. Enn fremur að kynna starfsemi félagsins, Styrktarsjóð Neistans ásamt helstu sjúkrastofnanir sem sinna hjartveikum börnum hér heima og erlendis.
Hér á landi greinast um 70 börn með hjartagalla ár hvert og þarf tæplega helmingur þeirra að gangast undir aðgerð af einhverju tagi og er þriðjungur þeirra framkvæmdar erlendis. Fyrsta barna-hjartaskurðaðgerðin var framkvæmd hér á landi árið 1990 og hafa síðan verið framkvæmdar tæplega 100 aðgerðir hérna heima. Meira á www.neistinn.is